Borði

Saga klúbbsins

 

Félagið Smábílaklúbbur Íslands (SBKI) var stofnað 1995 af nokkrum áhugamönnum um kappakstur á fjarstýrðum bílum og hefur það starfað óslitið frá upphafi. Það eru um 60 einstaklingar skráðir í félagið. Félagsmenn eru á öllum aldri og eru þeir allt frá 8 ára aldri upp yfir fimmtugt. Félagið heldur út öflugri heimasíðu þar sem er að finna spjall, upplýsingar, fræðslu og myndir. Félagsgjaldið er aðeins 3.000 kr á ári og er það haft svo lágt til þess að allir geti gengið í félagið óháð efnahag og haft gaman af starfinu sem þar fer fram. Lögð er áhersla á að halda keppnir þar sem keppt er um vegleg verðlaun og er stærst þeirra Íslandsmeistaramót sem haldið er ár hvert bæði í on-road (götubílum) og off-road (torfærubílar). Íslandsmeistarmótið er saman sett af fimm umferðum og telst sá sem hefur unnið flestar umferðir vera Íslandsmeistari. Inn á milli keppna eru haldin opin hús þar sem félagar og aðrir hittast og spjalla. Félagið hefur einnig haldið myndakvöld og grillað. Félagið lítur á starfsemi sína sem æskulýðsstarf og er því aldrei haft um hönd áfengi eða önnur vímuefni á þeim atburðum sem félagið skipuleggur eða kemur nálægt. Þeir sem vilja fræðast um starfsemi félagsins er velkomið að senda okkur fyrirspurnir í gegnum e-mail Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það eða koma á einhverja af þeim atburðum sem eru kynntir á forsíðunni, við munum reyna að svara spurningum eftir bestu getu.

 

Stjórn SBKI

--------------------------------------------------------------------------------

Bankaupplýsingar

Félagsgjalda-reikningur: 537-04-252041
kt: 671098-3669

Almennur-reikningur: 528-26-3590
kt. 671098-3669

 --------------------------------------------------------------------------------

Smábílaklúbbur Íslands
Pósthólf 8107
128 Reykjavík
Ísland

Dagatal

September 2010
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Könnun Veldu einn möguleika

Hefur þú skoðað on-road aðstöðu SBKÍ Í Korputorgi