03. nóvember 2009
Lög Smábílaklúbbs Íslands
I. kafli
Nafn og tilgangur
1. grein
Félagið heitir Smábílaklúbbur Íslands og er skammstafað SBKÍ. Merki félagsins skal áletrað nafni félagsins og með mynd sem er bæði táknræn fyrir nafnið og starfsemina. Lögheimili félagsins og varnarþing skal vera í reykjavík.
2. grein
Markmið félagsins er að koma á samstarfi áhugafólks um fjarstýrða bíla, gæta hagsmuna þeirra og bæta aðstöðu til keppnishalds, með því að:
Vinna að uppbyggingu brautarsvæða til aksturs fjarstýrðra bíla.
Stuðla að auknum skilningi á málefnum félagsins útávið.
Byggja upp sportið á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Ná sem víðtækustu samstarfi við önnur félög, og samtök í sportinu.
Efna til félagsstarfsemi s.s. funda, mannfagnaða og útgáfustarfsemi.
Vera fulltrúi áhugamanna um fjarstýrða bíla á Íslandi gagnvart hinu opinbera.
Leitast við að jafna ágreining er upp kann að koma milli félagsmanna.
Beina orku unglinga inn á jákvæðar brautir og stuðla að bættri umferðarmenningu
II. kafli
Meðlimir
3. grein
Aðild að félaginu á allt áhugafólk um fjarstýrða bíla. Meðlimur er þó ekki fullgildur fyrr en árgjald hefur verið greitt að fullu.
4. grein
Hægt er að vísa meðlimi úr félaginu hafi hann sýnt og sannað að hann sé ekki hæfur til að bera merki félagsins. Til þess þurfa átta fullgildir meðlimir að leggja fram skriflega, rökstudda kæru til stjórnar. Stjórn hefur úrslitavald varðandi meðferð brottvísana og þarf 2/3 atkvæða stjórnar til að staðfesta brottvísun. Áfrýja má slíkri ákvörðun til aðalfundar.
III. kafli
Stjórn félagsins og starfsemi
5. grein
Málefni félagsins annast stjórn, félagsfundir og nefndir sem þessir aðilar kjósa sér til aðstoðar.
6. grein
Stjórn félagsins skipa 5 aðalmenn að formanni meðtöldum, lágmark tveir úr onroad og tveir úr offroad. Stjórn hefur á hendi sér framkvæmdir milli aðalfunda, hefur eftirlit með nefndum og kemur fram fyrir hönd félagsins. Í stjórn félagsins skjal kjósa formann til eins árs í senn, 2 aðalmenn til tveggja ára, og 2 aðalmenn til eins árs í senn. Auk þess skal kjósa varaformann og vararmann í stjórn til eins árs í senn. Aðeins meðlimir 18 ára og eldri geta setið í stjórn og geta hagsmunaaðilar ekki setið í formannssæti (svo sem, söluaðilar og innflytjendur).
Skal kosning vera skrifleg séu fleiri en einn í framboði um embætti sem kosið er um. Stjórnin kýs sér gjaldkera, ritara og tvo meðstjórnendur og skiptir að öðru leiti með sér verkum.
Framboð til stjórar og eða formanns skal berast sitjandi stjórn eigi síðar en tveimur sólarhringum fyrir aðalfund. Ný stjórn hefur störf strax að loknum aðalfundi.
Stjórn skal gæta hlutleysis gagnvart hagsmunaaðilum.
7. grein
Aðalfund félagsins skal halda árlega og ekki síðar en í nóvember. Skal boða til hans með auglýsingu á heimasíðu félagsins með minnst fjórtán daga fyrirvara. Allar kosningar á aðalfundi eru bindandi. Falli atkvæði jöfn skal hlutkesti látið ráða. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir fullgildir félagar. Fullgildir félagar teljast þeir sem hafa greitt félagsgjöld. Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa mættir fullgildir félagar.
Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
Skýrsla stjórnar
Reikningar lagðir fram
Umræður um skýrslu og reikninga
Laga- og reglu breytingar
Kosning stjórnar
Önnur mál
8. grein
Stjórn félagsins er heimilt að stofna deildir og nefndir innan félagsins. Stjórnin setur nánari reglur um starfsemi þeirra. Formenn deilda og nefnda eiga seturétt á stjórnarfundum félagsins með fullt málfrelsi og tillögurétt.
9. grein
Ritari félagsins hefur umsjón með allri almennri útgáfustarfssemi, þar með talið heimasíðu félagsins.
IV. kafli
Tekjur
10. grein
Rekstur félagsins skal fjármagnaður með félags- og keppnisgjöldum, útgáfustarfsemi o.þ.h. Aðalfundur félagsins ákveður félagsgjöld fyrir ár hvert. Félagsgjöld skulu staðgreidd. Tímabil félagsgjalda er almanaksárið.
11. grein
Tekjur renna í sjóð félagsins og skal honum varið í framkvæmdir og rekstur að öðru leyti eftir settum reglum á hverjum tíma. Enginn félagi hefur tilkall til hluta af sjóðnum þótt hann hverfi úr samtökunum eða þeim sé slitið.
IV. kafli
Lagabreytingar ofl.
12. grein
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 hluta atkvæða allra mættra fullgildra félaga til að breytingin nái fram að ganga.
13. grein
Tillögur að lagabreytingum skulu hafa borist stjórn félagsins eigi síður en viku fyrir aðalfund. Tilkynning um skilafrest lagabreytinga skal birt í aðalfundarboði. Allar þær tillögur að lagabreytingum sem stjórn hefur borist skal auglýst á heimasíðu félagsins fimm sólarhringum fyrir aðalfund.
14. grein
Stjórn kveður til aukaaðalfundar þegar þess er þörf eða a.m.k. 1/5 hluti fullgildra félaga félagsins óski þess enda geri þeir áður grein fyrir fundarefni. Til aukaaðalfundar skal boða með a.m.k. viku fyrirvara.
15. grein
Síðast endurskoðað 27. Okt 2008
Lög þessi öðlast þegar gildi.


