Borði

Fjöldi Keppenda
a) 4 keppendur þurfa að skrá sig og mæta til þess að flokkur sé keyrður og telji til stiga í ÍM.

Skráning
a) Skráning er í 1 klst, 30mín eftir mætingu hefst skráning og stendur í 1 klst ekki er hægt að skrá sig eftir þann tíma.
b) Skráning er kláruð með greiðslu á keppnisgjöldum

Dómari
a) Skipa skal sérstakan dómara fyrir allar keppnir ÍM.
b) Dómari hefur endanlegt vald og ekki er hægt að áfrýja eða kæra úrskurð hans enda
séu þær í samræmi við reglur klúbbsins.

Talningarkerfi
a) Keppandi ber sjálfur ábyrgð á að hafa talningarkubb í bíl sínum.
b) Ef keppandi gleymir að setja kubb í bílinn sinn á hann ekki möguleika á fleiri
stigum en sem nemur stigafjölda úr síðasta sæti þess híts.
c) Ef talningarkerfi eða einstaka kubbar bila skal undantekningarlaust endurtaka viðkomandi hít í lok tímatöku eða í lok úrslita. Tímar úr híti ógildast við þetta.
d) Talningarkubbur skal í öllum tilfellum vera festur undir boddíi bíls og þar sem hann er sem best varinn fyrir skemmdum.
e) Talningarkubbar eru á ábyrgð keppenda.
f) Eigin talningakubbar eru á eigin ábyrð.

Hít
a) 10 keppendur skulu vera í hverju híti.
b) Keppandi í onroad skal hafa lágmark 50 mín. milli híta til að hlaða rafhlöður. Keppnisstjóri getur ákveðið annað í samráði við keppendur
Ef keppandi keppir í fleiri flokkum gildir reglan fyrir hvern flokk ekki milli flokka.

Fjarstýringar
a) Slökkt skal vera á öllum fjarstýringum og rafbúnaði í bílum sem eru ekki að keppa, á meðan bílar eru að keppa í brautinni.

Tímataka
a) Keyrðar eru tvær tímatökur og betri gildir.
b) Tímataka varir 5 mínútur auk þess tíma sem það tekur síðasta bíl að klára hringinn.
c) Besti tíminn er ákvarðaður með hringjafjölda og þann tíma sem það tekur keppanda að koma í mark eftir 5 mínútur. Flestir hringir gefa ráspól og svo koll af kolli.
d) Bannað að bakka í tímatöku

Úrslit
a) Hvert hít er 5 mínútur og sá tími sem það tekur síðasta bíl að klára hringinn.
b) Sigurvegari er sá sem keyrir flesta hringi á 5 mínútum. Ef fleiri en einn keppandi eru með jafn marga hringi gildir tíminn þ.e.a.s. sá sem er fljótastur í mark vinnur. Dæmi 15 hr. 5:02,22 er betri tími en 15 hr. 5:03,42.
c) Keyrðar eru þrjár umferðir og tvær bestu gilda.
d) 1. sæti gefur 1 stig, 2. sæti 2 stig, 3. sæti 3 stig og koll af kolli. Keppandi með
fæst stig að loknum þremur umferðum sigrar.
e) Bannað að bakka í keppnishíti

Brot á reglum
a) Ef keppandi bakkar, skal 1 hringur vera dregin frá keppanda í þeirri umferð.
b) Við önnur brot skal draga frá 1 hring
c) Ítrekuð brot valda að umferð er dæmd út hjá viðkomandi ökumanni

Frestun
a) Ef ekki er hægt að halda keppni á auglýstum degi vegna veðurs má endurtaka hana á öðrum tíma.
b) Það er endarlegt mat dómara hverju sinni hvort fresta eigi keppni eða ekki. Endanleg niðurstaða frestunar skal liggja fyrir eigi síðar en kl. 13:00 á keppnisdegi. Keppni skal hefjast klukkustund eftir að niðurstaða er tilkynnt.

Afréttarar
a) Keppendur eða staðgengill keppanda skal mæta sem afréttari fyrir næsta hít á eftir.
b) Ef keppandi eða staðgengill mætir ekki sem afréttari í næsta hít verður hítið sem hann keyrði á undan ógilt.
c) Staðgengill í afréttingar skal vera vanur að umgangast fjarstýrða bíla.

Stigagjöf í Íslandsmótinu
a) Aðeins fullgildir meðlimir (sjá lög félagsins) í SBKÍ hafa möguleika á að safna stigum til Íslandsmeistara.
b) Keppandi sem lýkur ÍM með flestum stigum verður Íslandsmeistari.
c) 100 stig eru gefin fyrir fyrsta sæti, 98 fyrir annað sæti, 96 fyrir þriðja sæti, 94 fyrir fjórða sæti ,93 fyrir fimmta sæti og svo koll af kolli með eins stigs mun. Keyra þarf lámark einn hring til þess að fá stig, ekki eru gefin stig fyrir tímatökur.
d) Keyrðar verða 5 umferðir og þar af gilda 4 til sigurs, keyra verður lámark 3 umferðir svo að Íslands Mót teljist gilt.
Keppandi fær engin stig ef hann mætir ekki. Hámarksstigafjöldi sem hægt er að ná til ÍM eru 400 stig.
e) Ef umferð er ekki keyrð vegna ónógrar þátttöku, telur hún sem núll stig til ÍM, en gildir áfram sem umferð.
f) Ef upp kemur jafntefli gildir sú umferð sem var hent út. Ef enn er um að ræða jafntefli gildir
besta sæti sem keppandi náði á tímabilinu. Ef enn er um að ræða jafntefli gildir síðasta umferð í ÍM til sigurs.

Dagatal

September 2010
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Könnun Veldu einn möguleika

Hefur þú skoðað on-road aðstöðu SBKÍ Í Korputorgi